Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
húsaleigubætur eru samþyktar með ánægju af borgarstjórnarmeirihlutanum af því að þær renna beint til húseiganda og um leið stuðla þær að því að kíla húsaleiguverðið og þar með fasteingaverð upp í þak...
altso hugmyndin um góðgerðastarfseminn fyrir fasteingnamarkaðinn á vegum almennings er mjög athyglisverð
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2010 | 06:59
stjórnmálamenn á mútum hjá amerísk-alþjóðlegum þjófafélögum í 70 ár
þessir ráðamenn og þingið,.. hafa í raun kóperað bandarískann glæpaáróður og mafíulög í 50 ár,.. og þegið fyrir það ógrynni af mútufé fyrir sig og sína.. "mjög svo málefnaleg" heilalaus strengjabrúða og tækifærissinni er stjórnmálamaðurinn
landráð er glæpurinn.. eyðilegging á íslenskri menningu... sala landsins og orkunnar og nauðgun á náttúru og menningu og fólki í hálfa öld vel rösklega
eitt fyrsta verkið er að vísa bandarískum fulltrúum hér úr landi... annað að fara fram skaðabætur fyrir stríðaskemmdir og aðra eyðileggingarstarfsemi síðustu 70 árin til dæmis til jafns við tvöfaldar skuldir landsins í dag, sem til komnar eru í gegnum lygaleik Miltons Friedmans og Greenspans og félaga...
Jú það þarf byltingu ... allt ríkisbáknið er litað amerísku lýginni... og nær hálf þjóðin er uppundir höku
byrjum á að and- heilaþvo þjóðina
og nú viljum við LÝÐRÆÐI fólksins í landinu og vistvæna banka án vaxta
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.4.2010 kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2010 | 08:02
hvað þurfum við?
hverskonar samráð þurfum við?
fólk sem lokar hvert annað af og læsir sig og er læst inní klefum?
við þurfum hringborðsumræður
og umhverfis eld og ljós umræður
að virkilega sjá hvert annað og hinar raunverukegu þarfir
opnar umræður út í náttúrunni í heitum böðum þing
samræður jafningja þing
stundum er best að þinga með fólki sem maður er að kynnast í fyrsta skipti
þar er allt ferskt og ekkert fyrirfram gefið
við þurfum alveg nýtt þing.. það er einsog við séum í dönsku teiti á 19. öld.. þar sem aðalsmenn semja við kóng sinn. Við þurfum að tengja þingið og raunveruleika þjóðarinnar. Umræður og lög þessa þings eru loddaramennska... brúðuleikur.
Við þurfum máski allaleið til baka í sandkassann?
eða hvernig samráð viljum við?
við erum með útbrunnið kerfi fullt af útbrunnu fólki hugsandi úreltar hugmyndir... hugmyndir sem valda mun meiri vandamálum en þau leysa... hugmyndum sem ekki er ætlað að leysa neinn vanda... frekar að viðhalda og auka við vandann... enda má ekki sjá vandann og þarafleiðandi ekki ræða neitt að viti...
og það er samráð án áhrifa peningavaldsins á ákvarðanatökur
það er fleira mikilvægt en peningar
maðurinn lifir ekki á brauði einu saman og vatni
er frelsarinn alveg ónýtt viðmið? var hann að kaupa hlut í banka?
Vildi hann ólmur selja Rómverjum Gyðingaland eða öfugt? Nei ég á því að ekki margir skilji hvað hann hafði í huga. Samkvæmt gömlu kristninni þá erum við á hraðleið til helvítis. Það er bara verst að Helvíti er sami staðurinn og Himnaríki og þar er bar núna. Og allt til sölu. Eða hvað? Muna menn eftir einhverju sem ekki er til sölu á þingi íslendinga?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2010 | 12:46
En staðan er mun alvarlegri en skýrslan getur um..
bæði er varðar skilningsleysi á að auðhyggja og vextir eiga einga framtíð í jafnvægismenningu framtíðar eins og áður sagði
en ekki er langt frá lagi að önnur orsök sé alvarlegri og meira aðkallandi á þessari stundu og það er
að landið og miðin.. kvótinn og skipin og orkan og vatnið liggur meira og minna undir hamrinum og sumt þegar í úlfskjöftum
hversvegna í dauðanum um það er ekki fjallað ???
jú Jóhanna og félagar væntanlega voru svo pen að orða verkefni þessarar rannsóknarnefndar og bundið við það virðist vera, við: "orsakir bankahrunsins" !!!
Sumsé, við þurfum aðra skýrslu um ástand mála og um eignatilfærslur og hvað er að gerast í bönkunum og fleira... einsog vonleysi þess að tengja saman umhversisstefnu og auðhyggju... semsagt skýrslugerðir eru bara rétt að byrja
landsauðurinn sameiginlegi hefur verið seldur fyrir slikk og allt veðsett upp fyrir glóru
þetta vilja sumir ekki ræða... þeir hinir alþjóðlega þenkjandi og þar er Samfylkingin framarlega.. þeim virðist sama hvort það er auðhringur eða þjóðin sem á ísland.. eða Evrópa sem óskiljanlegt er og þar eru sumir bara að framapotast sem hugsa svona.. á þingi, þeim er sama um þjóðina.. af hverju má ekki tala um landráð?
altso.. það eru tvær tegundir af broti...ómeðvitað... óviljaverk, óvart og hinsvegar meðvitað afbrot
væntanlega er oft erfitt að greina þarna á milli... þetta er meira líkindareikningur og áhætta kallað í bönkum og þar sem áhættan er þar er adrenalinfýkn.. og kallað spilafýkn, áhættusækni sem knúin er áfram af græðgi og þessari adrenalínu og öllum rjómanum og ljómanum...
og miklar drottningar vilja mikinn kappa.. öflugan knapa..
þetta eru sterkir kraftar og svo hrösum við
er þá vit að seigja nei.. ég stóð teinréttur?
ja hvað eru margir saklausir dæmdir á Hraunið?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2010 | 21:48
tilraun til að sjá fyrir sér æskilegar grunnlínur í heilsulegu samfélagi og hugmyndir inn í samfélagssáttmála...
Mér finnst að okkur sé óhætt að sjá manninn sem það spenndýr sem hann er og að skoða hvað hentar svona spenndýri án siðmenningaráhrifa er mjög spennandi verkefni
við erum að horfa á velferð manna og dýra og alls lífs
og að það fer saman og tengist hvert öðru
og jafnvægis er þörf.. manneskjan þarf að setja sér takmörk
að lífsrými er takmarkað á jörðinni
draga saman seglin heldur en hitt
þetta kallar á samábyrgð og sameiginlegt eftirlit.. allra
líka að velja sér fæðutegundir af þeim sem yfirdrifið er af frekar en þær sem lítið er af
og gefa þeim sem lítið er af góðan séns... við þurfum öll að verða náttúrulegir náttúrufræðingar má seigja... þetta er höfuðatriði... passarar auðs lífsins og svo þurfum við að læra að sá og að hafa í sig og á
síðan koma útlistingar á þessum tengslum sem maðurinn hefur við náttúruna og aðrar tegundir og þá skuld mannsins að passa uppá að tegundirnar hafi það gott og lifi sínu eigin lífi villt í friði
það er okkar verkefni fyrst við erum svona klár að hafa alla þessa yfirsýn og kraft
grunnhugsunin okkar hér og nú er því að skapa samfélag sem er með gott og jafnvægisfullt samráð manna á milli og fullri virðingu fyrir hvurs annars tilvist til þess svo að við getum sameiginlega tekist á við það að draga saman seglin... og hér er algerlega grundvöllur að snúa alfarið frá auðhyggju eins hratt og auðið er.. því auðhyggja byggir á alltof mikilli orkueyðslu og það sem vest er ..;stöðugri aukningu.. það er grunnurinn í auðvaldsskipulaginu og algerlega ósættanlegt við vistvæna leið sem er hin vitræna framtíðarlausn að fara... annað er ekki ásættanlegt... við erum ein heild og jafnvægis er þörf ... hér er grundvöllurinn að raunverulegri breytingu... að sjá þetta sem grundvöllinn í hinum nýja samfélagssáttmála.. að fá gott samráð og virðingu í verki fyrir náttúrunni.. og það er jafnvægi.
og þetta góða samráð gerist ekki án beintengsla fólks.. fólk þarf að sjá hvert annað... þessi fjölmiðladella er ótæk með öllu og stjörnudýrkun.. sólóleikir og leikrit
við erum að tala um að í grunnþinginu þurfa allir að þekkjast.. sjá hver annan... og 100-150 manns er hámark tel ég og máski þá frekar lægri talan 100 ... við náum ekki utanum að kynnast fleirum að viti..
og ég get rökstutt þetta á fleiri vegu... en hér er þorpið .. grunneiningin í vistvæna samráðsforminu framtíðar og þessi hópur þarf landrými .. bæði vilt og ræktunarland... sem þau þá passa saman
það þarf ekki að vera neinn hermennskuandi eða sovétstíll í þessari grunneiningu
sumir eru einstaklingar og meira fyrir sig inní skóginum.. aðrir mæta meira í þinghúsið og ræða mikið saman.. að svo koma tímabil þegar nær allir mæta... á hátíðum til dæmis,.. en allir eru tengdir einhvernvegin..
i þinghúsinu eru vorþingin pólitísk, þá er valinn fulltrúi á þjóðþingið.. sem er haldið miðsumars og um leið þakkarhátíð til sólar og frjósemishátíð til lífsins... og um haust er þakkarhátíð aðfanga og svo jól áfram jól en tengd dauða og endurfæðingu lífsins og ljóssins og barnsins.. og manneskjunnar
og þá koma hugmyndir um samráðsform manna á milli og nánari útlistingar..
einstaklingurinn, fjölskyldan, samráðsþingið .. þjóðþingið og svo heimsþing, samfélag manna á jörðu
hver er réttur einstaklingsins? Og heimaþingsins?.. og þjóðréttur er annar kapituli mikilvægur og svo er spurningin hvort gera á einhverjar kröfur til einstaklingsins sjálfs.
Mér finnst til dæmis að stórþingin... þjóðarinnar og heimsþingið hafi hvert fyrir sig mjög afmörkuð svið... til dæmis á heimsþingið ekki að ráða yfir þjóðþinginu nema kannski í umhverfismálum er varða jörðina og eins getur þjóðþingið ekki ráðið hvaða reglur heimaþingin hafa heima fyrir..
er einhvers vænst af okkur... mér og þér? og hvers er vænst af kjörnum fulltrúum?
og ég er á því að í raun sé þess vænst að við pössum uppá okkur sjálf og hvert annað eftir þörfum og bestu getu sem og aðra líf frændur vora.. eða einsog orðtakið seigir "vertu öðrum eins og þú vilt að aðrir séu þér" eða þannig er hugsunin og í umgengni að leitast við að skilja við einsog komið er að, sérílagi í villtri náttúru.
Skýrslan góða.. hún fjallar ekkert um þennan grundvallarsannleika sem okkur er nausyn að læra og koma í verk hér... málið er ekki að byggja sér stór og dýr ónáttúruleg hús og vinna og vinna í því... málið er að lifa sem nettast... taka sem minnst frá náttúrunni ... að lifa góðu heilbryggðu lífi... við getum byggt okkur okkar eigin hús á óteljandi vegu og tjöld sem þola vetur..
byrja á kartöflum og berja og sveppaferðum... og svo já bæta við þekkingu og tegundum
tengjast fólki sem hefur áhuga á ræktun og sjálbærni... og finna stað og stundir
gott verkefni fyri sjálfstæðismenn t.d. og mig ekki síður og trjárækt
ég hef ekki haft garð að gagni í nokkur ár.. þó alltaf sett niður fræ á hverjum stað þar sem ég er..
hef verið of mikið á ferðinni... garður kallar á að vera á sama svæðinu yfir sumarið
það eru mörg skref þessi leið til heilsusamlegs lífs eftir þetta sukk sem við höfum verið í... en leiðin liggur nánast til bernskunnar þar sem mamma og pabbi voru með kartöflugarð og í berjaferðir... þetta voru í raun fínar stundir... sérstaklega berjaferðirnar...
við höfum öll verið afvegaleidd á mismunandi sviðum máski en sameiginlega dregist inn í ranga leið vélhyggjunnar... nú erum við átta okkur að þetta er allt orka og vitund og tengt og ein samhangandi heild.. og það sem einn hugsar... seigir annar og hinn framkvæmir eða að við gerum bara allt sem að þarf að gera.. þá og þá stundina.. því erum við vön
og þetta er pólitísk leið ekki síður en mótmæli og um leið persónuleg leið
einsog ég seigi.. ég hef velt þessu fyrir mér og að þetta hefur með líffræði að gera, manneskjan og náttúran eru ekki aðskilinn... við eru í náttúrufræði.. jú jú samfélagsfræði og allt.... t.d. við erum með of stór hús.. við erum jú frekar stór mus með stjórnsemis æði og bað og eldæði og haldin blindu á vissum sviðum, dáltið ansi frek.. haldin jafnvel hóp-meinlokum of mörgum, en sum okkar sjá bísna vítt yfir nefið og þaðan koma góðar ábendingar
vonandi að menn fari að leita að þessum góðu hugmyndum og vinna að þeim..
vissulega er í lagi að gera upp það sem var farið í gegnum með þessa banka.. en skýrslan nefnir bara ekki og sér ekki að auðhyggjan er dauðdæmd leið og að við þurfum 180 gráðu vendingu... enga auðhyggju.. bara jafnvægi og listir. Og mannrækt.. ekki síður en garðrækt og almennt eftirlit með jafnvægi tegundanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.4.2010 kl. 07:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2010 | 15:06
annars trúi ég mest á hin lágværa lækninganið
að við róum okkur niður og ræðum saman við kertaljós í hring...eða eld helst á gólfinu eða jörðinni með teppi þá og kósí, en það þarf kannski að safna mosa og gera hægindi og regnskjól ef fer að rigna, en það má gera á einfaldan hátt með dúkum og einum staur og köðlum, og þvi er hægt að hagræða eftir vindátt sem skjól
tóna og gala saman og þeigja saman og tala saman
með fjöður
---
hér er þingið
náttúrubarna, álfanna fyrir "landnám"
stóra fjölskyldan
og enginn þörf fyrir neinn sérstakan höfðingja eða forseta á því Þingi.. (en þeir skjóta upp kollinum annaðslagið sjálfskipaðir... og við það þarf að eiga... sumir eru með góðar hugmyndir... skapandi og skemmtilegir .. söngglaðir) þeir sem hafa reynslu og hjarta leiða ósjálfrátt
það finna menn ef vel er mælt og einlæglega... og góðar hugmyndir fá fylgi
en í grunninn erum við að sjá hvert annað... ná sambandi með því að hlusta og sjá
þetter einsonar hugleiðsla og oft mjög spennandi og dásamleg ... þegar fólk nær saman
og heilandi.. fyrir þá sem eru einir innísér með einhverja erfiða tilfinningu .. og sögu,.. sýn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2010 | 13:55
Ég held að landið sé að seigja með þessu Eyjafjallsgosi: komiði fram með þjáningu ykkar!
og þunga! Skrifið! Sýngið, Æpið! Berjið bumbur og bræðið ís þagnarinnar og óttans, rífið ykkur laus, tjáið ykkur!
Beint frá hjartanu... SKRIFIÐ YKKAR EIGIN SKÝRSLUR á netið og upp um veggi og u tube og í ljósmyndir og sögur ... SYNGIÐ ÞÆR! HRÓPIÐ YFIR GATNAMÓT OG TORG! MÁLIÐ ÓHEFT UM ALLAN BÆ HVAÐ YKKUR FINNST! HVERNIG ÍSLAND VIÐ VILJUM! HVERNIG SAMRÁÐ OG HVERNIG SAMSKIPTI ÞÚ VILT!
já sársaukann líka
látið hann hljóma og, látum hann gráta og rífa í hár sér... líka reiðina við okkur sjálf látum hana emja og orga, eða sorgina yfir því sem ekki var
grátum þá og grátum með ekka
inní tómið og ást æðu leysið þar sem ekki er nein löngun lengur.. öll þessi tár verða að kyrrlátum dimmbláum vötnum
hin líflausa kyrrð
og sýngjum svo aftur er sól rís ... sýngjum drauminn til lífsins um "ljóðsins eilífa land"
landið þar sem fólkið kann samráð sem eru ekki bara sanngjörn heldur líka yndisleg og stór-áhugavert já skemmtilegt og þroskandi...
heilsusamlegt og án nokkurs yfirgangs við aðrar líftegundir
13.4.2010 | 13:23
svar við spurningu Hjálmars,.. hvernig samfélag?
"nú er komið að samfélagsspurningunni"
http://blog.eyjan.is/hjalmarsveinsson/2010/04/13/engin-leid-til-baka/comment-page-1/#comment-190
jáu.. hvernig samfélag?
hvaða valkosti höfum við?
erða bara vinstri hægri áfram gakk, 1 2 3, blandað hagkerfi, norrænt módel!
eða eru valkostir við þá kenningu að ekkert geti haggað 4 flokknum og hnútakastinu
og mafíuklíkustíl síðustu 50 ára
1200 ára eða 5000 ára frá upphafi siðmenningar eða var eitthvað á undam siðmenningunni sem ekki er áhugi hjá hinum siðmenntuðu að kíkja á
áður en að það fer allt í glatkistuna, hvernig á að lifa í jafnvægi og ekki í stöðugri aukningu sem þetta mikla sjálfblekkingarbatterí sem kallar sig siðmenningu hefur alla tíð stundað.. fyrr með stríðum og yfirgangi nú með peningum og stríðum og yfirgangi og að sömu aðilar ráða fjölmiðlum
spurningin er hvernig fáum við valdið til að fara úr höndum þeirra sem vilja bara endalausa útvíkkun og til þeirra sem vilja jafnvægi
13.4.2010 | 11:24
inn í hugmyndatánkinn um samráðsformið (svar við boðsbréfi á hugmyndafund um stjórnlagaþing og samráðsform sem virkar þjóðinni til heilla)
Já takk Geir, hér ert þú að tala um mál sem vissulega er innan míns áhugasviðs.. jafnvel í miðju athyglinnar þessa mánuði og ár eftir hrun. En verra er að ég er svo langt í burtu og dýrt að ferðast að það er hæpið að ég komist,.. ég er staddur inn í miðju finnlandi á svona lífrænu ræktunsvæði og hér er vor í lofti. Já ég veit ekki hvað þú ert mikið inn í mínum hugmyndum um hvernig á að leysa samskiptavanda manna... altso um samráðsform.. það er eitthvað um það á tryggvigunnarhansen.blog.is og víðar.. lightisee.blogspot.com en fletta þarf til baka til að finna það og
það er töluverð vinna að skilja af hverju þetta er mín bjarfasta skoðun og viðhorf að við þurfum að byggja upp grasrótarþing.. og hverfaþing... við sem viljum almennilegt lýðræði... hundraðmanna (t.d.) grunnlýðræðiseiningu... vorþingin
þetta er þjóðveldisformið jú.. en ekki með föstum goða heldur er hann kosinn af hópnum hvert ár og þá eru 3000 manns á þjóðþingi á miðju sumri... (ef heimaþingin er 100 manns) og sumsé ég hef ekki trú á að fólk nái saman án þess að vera saman við leik og störf.. elda og baka og vaska upp og baða sig og ræða saman í leiðinni... líka rætt með hjálp talstafs... og hlustað á alla.. stundum langt frammá nótt og sungið og fl. síðan þegar menn hafa kynnst þá er hægt að kjósa fulltrúa í stjórn til eins árs... þeir eru þjónar en ekki stjórar.. eiga að framkvæma vilja þingsins
ég ég vil sjá þessi sumarþing í búðum... altso tjöldum og torftjöldum úti undir berum himni þing...
á nýjum og nýjum stað ár hvert... þjóðin þarf að kynnast og þjóðin þarf að kynnast landinu sínu.. þetta er stórskemmtilegt og lifandi þing sem ég er að tala um.. algjör bylting
en þessar hugmyndir sem ég er með eru vissulega að mínu mati eina leiðin sem við höfum ef við ætlum að vera til sem þjóð eftir 100 ár... jafnvel allt norræna kynið er á förum út vegna sofandaháttar þeirra sem nú stýra með lokuð augu og gráðugan munnsvip
í verstafalli gætum við tekið okkur á og rætt saman um þessar hugmyndir... (þú getur til dæmis spurt mig út í þessar hugmyndir.. ef þér finnst eitthvað óljóst eða af hverju ég sé þetta svona en ekki einhvernvegin öðruvísi) já ég er með ansi stóra og mikla sýn á sögu manneskjunnar og eiginleikum. Þetta er kannski of mikið efni fyrir þennan fund en þetta tengist allt saman í eina heild. Og er varðar samskipti manna við náttúruna og aðrar líftegundir og sálrænt ástand mannsins og heilastarfsemi og fl. og fl. En semsagt við þurfum að sjá heiminn og okkur sjálf alveg uppá nýtt... sem orkufyrirbæri og vitund.
sjá sögu okkar og alls lífsins í samhengi og velja svo þá leið sem tryggir okkur heilbryggði og hamingju í samstreymi með öllu lífi jarðarinnar... og þar passar auðhyggjan ekki inní og ekki global vandalismi og hrærigrautur, hver þjóð þarf að passa sína menningu og rætur og gæði... passa uppá manntegundir, vissulega mikil samskipti og blöndun en ekki öllu, áfram þarf að varðveita grunn hverrar menningar og læra söguna með hjálp af samanburði á þessum menningarrótum
já þetta "think tank" samræðuform sem þú talar um, eru það litlir hópar sem ræða saman undir handleiðslu?... ég var held í einhverju svona með anarkistonum uppá hellisheiði fyrir 2 árum og fannst það of hratt og harðsoðið... tosað af "leiðurum" sem vissu hvað þeir vildu fá fram og sem höfðu þróað með sér hugtök og táknmál sín á milli.. þetta var hópur sem leiddi en ég er aftur meira vanur hringjum og talstaf eða fjöður.. og tvö meigin samræðuform sem heita hjartahringur og sýnir (vision) og hef practiserað þetta í nokkur ár á norðurlöndum með hóp að fólki sem reyndar kom heim til íslands fyrir 2 árum. En mjög fáir íslendingar komu... orðið semsagt gengur... jú þetta geta orðið bísna langir fundir en miklu dýpri samkennd og nálægð og innsýn
það er kallað Ting.. altso þing, oftast setið við eld á sumarþingum en það eru smærri vor haust og vetrarþing hér í finnlandi til dæmis og svo regnbogaþing fyrir alla evrópu af fólki sem hittist í svona hringjum.. það verður í finnlandi hér í sumar og líka norræna þingið.
þessi siður að láta fjöður eða staf eða einhven ávöxt ganga og sá sem heldur á fjöðrinni hefur orðið er ættaður frá indjánum en mín upplifun er að siðurinn sé eldri en indjánar í ameríku en að þeir hafi þróað og varðveitt þessa útgáfu að þingsköpum, sem ég upplifði sem hugleiðslukennda kynningu... þar eru allir að kynnast öllum og merkilegar verur koma fram sem yfirleitt þeigja,... sérílagi í hjartahringnum...ýmiskonar vitundarástandsbreyting... sérílagi þegar menn tala í einlægni um tilfinningar sínar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2010 | 21:37
smá innsetning um skýrslu blindingjanna
þessi texti hér undir kom sem viðbrögð við þessari klausu á andlitsbók staða Hauks Más Helgasonar:
"Alræði náttúrumyndanna: á forsíðum allra binda skýrslunnar eru fossar, steinar, strandir og fjöll. Eins og í Mogganum. Og við dagskrárlok RÚV. Og alls staðar, alltaf."
og þessi athugasend kom svo frá mér:
og ENGANN! hefur látið sér til hugar koma (nema einn svo ég viti til..) að allt tal um náttúruvernd er bull á meðan við áttum okkur ekki á að aukning og vextir þar með mun eyðileggja alla þessa náttúrufegurð fyrr eða síðar... að bankakerfið og græðgin (sem væntanlega stafar af ýmiskonar vöntun) eru aðal vandamálið og orsökin að eyðileggingu náttúrunnar um allan heim... Er þetta ekki furðuleg og alvarleg blinda... eftir 2. ára stanslaust fjas?
en Davíð og sjálfstæðissölubatteríið og bankamenn fá nett högg hér og hvar.. allt með mjög almennu orðalagi þó
já við tökum létt á þeim sem sjá að sér og styðja grundvallar stjórnkerfisbreytingar ...
Já, og algjörlega nýtt stjórnkerfi, eða ætti að segja þjónustukerfi?
vonandi góður í að hjálpa þjóðinni að hjálpa sjálfri sér til heilbrygði og hamingju og öllu lífi en ekki endilega með valdboði ... kannski meira með því að framkvæma þær góðu hugmyndir sem þingið hefur fundað um sameiginlega og biður þá að sinna (ég er að vona að lög lands séu bara í nokkrum setningum þegar frá líður..) já nú er kominn sá tími Gunni að við þurfum að semja nýja stjórnarskrá með manifesti um rétt og skildur manneskjunnar... hm.. það er ekki lítið verkefni og við höfum verið að ræða þetta í áratugi held ég bara..
---
3. spjall úr sömu bók
Þorleifur Ugluspegill Ásgeirsson skrifar þetta:
"Iss það verða allir búnir að gleyma þessari skýrslu á fimmtudaginn."
og komment hér frá mér:
og helst ekki undir 9 bindum og já tilkynnum útgáfudaginn fljótlega... við getum alltaf framlengt en lögregufylgd í bóksöluna og gæsla í prentverkinu... það finnst mér töff
hver og einn les bara í 10-15 mínotur .. þeir sem lesa mjög vel og skilmerkilega taka athyglina meira af manni og toga mann inní textann sem er soltið erfitt... þettereinsog á láta troða sér í poka.. best þegar textinn dettur út annaðslagið (spurning um álag á vefnum) og þegar lesandinn skilur ekki textann.. þá lyftist andinn í ljóðrænu
http://www.borgarleikhus.is/livestream
-------------
og hér kom ég með haus á bók:
Tryggvi Gunnar Hansen jæja.. hér eru fáein orð um þá ofurlöngu skýrslu "Já, þeim varð á strákunum. En auðvitað tökum við létt á þeim. Ekki má gleyma brosköllunum" sjá nánar um það á www.tryggvigunnarhansen.blog.is
Sólveig Dagmar Þórisdóttir ?????Af hverju sleppur Ingibjörg Sólrún?????
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.4.2010 kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)