14.4.2010 | 15:06
annars trúi ég mest á hin lágværa lækninganið
að við róum okkur niður og ræðum saman við kertaljós í hring...eða eld helst á gólfinu eða jörðinni með teppi þá og kósí, en það þarf kannski að safna mosa og gera hægindi og regnskjól ef fer að rigna, en það má gera á einfaldan hátt með dúkum og einum staur og köðlum, og þvi er hægt að hagræða eftir vindátt sem skjól
tóna og gala saman og þeigja saman og tala saman
með fjöður
---
hér er þingið
náttúrubarna, álfanna fyrir "landnám"
stóra fjölskyldan
og enginn þörf fyrir neinn sérstakan höfðingja eða forseta á því Þingi.. (en þeir skjóta upp kollinum annaðslagið sjálfskipaðir... og við það þarf að eiga... sumir eru með góðar hugmyndir... skapandi og skemmtilegir .. söngglaðir) þeir sem hafa reynslu og hjarta leiða ósjálfrátt
það finna menn ef vel er mælt og einlæglega... og góðar hugmyndir fá fylgi
en í grunninn erum við að sjá hvert annað... ná sambandi með því að hlusta og sjá
þetter einsonar hugleiðsla og oft mjög spennandi og dásamleg ... þegar fólk nær saman
og heilandi.. fyrir þá sem eru einir innísér með einhverja erfiða tilfinningu .. og sögu,.. sýn.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:32 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.