22.10.2009 | 08:44
hvernig við fáum nýtt þing og hvernig 2 þing munu eigast við á tímabili..
vandinn er bara sá að hvorki vinstri né hægri geta tekið á vandanum því vandinn er þeir sjálfir... og allt ríkisbáknið og peningagræðgin... hér eru bara allmargir hópsjúkdómar upptaldir og ef ekki verður að gert mun islensk þjóð líða og líða og að lokum líða undir lok... því þessi öfl vilja ekki sleppa takinu af spenanum áreynslulaust... en landinu er semsé stjórnað af blindingjum... ólöglega... glæpsamlega heimskulega!!!
hvernig þessi breyting getur átt sér stað...?
jú þetta þarf að koma frá grasrótinni og síðan munu vera til 2 stjórnir þar til þjóðin sameinast undir merkjum hins nýja þings
og hvernig eigum við að verja hið nýja þing gegn spillingu valdsfrekju og peningaafla?
og það er tillaga að ef menn fá á sig vantraust vegna mútuþægni þá leiði það til rannsóknar og teljist brot sannað þá brottvísun frá stjórn og þingsköpum í 3 ár eða meira... og við endurtekið brot 20 ára brottvísun frá þingi og stjórn... og þriðja brot lífstíðar brottvísun frá þjóðþingi en úr heimaþingi geta menn illa verið brottu nema heimamenn hafi slík lög einnig í sínu þinghaldi.
sumir munu vilja skoða forn lög um útlegð... en það vona ég að verði fátítt mjög.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.10.2009 kl. 09:33 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.