Léttur sprettur um einu heilbryggðu leiðina út úr þessu hörmungarástandi

jæja.. ég hef rætt þetta áður hér...  það sem við höfum framundan ef við viljum eiga framtíð sem þjóð er þetta val... ja eina leiðin vil ég seigja... fyrir sumum val ennþá en fyrir mér eina leiðin er að við snúum bökum saman og hættum í peningaleiknum... þjóðnýtum allt landið og orkuna og miðin og gerumst sjálfbær...  snúum bökum saman gegn auðvaldinu heimsins... getum við það... já við gerum þetta undir opnum tjöldum með fullkomnu gagnsæi... svo að allur heimurinn verði vitni af þessari nýju leið (sem jafnframt er eldforn og grundvallandi öllu lífi... í fjölda litilla eininga að lifa f náttúrunni) og í fullkomnu samráði... og lifandi lýðræði. Altso.. "óvinurinn" eru þessir alþjóðlegu auðhringar... "valið er ísland eða auðhyggjan og auðvitað gengur þetta betur ef við getum fengið alla með... jafnvel fjölmiðla og fjölmiðlaeigendur... þessa sem spiluðu með auðhyggjunni.. að þeir standi með þjóð sinni og hjálpi til við að afhjúpa þetta já samsæri veraldarmafíunnar... að sundurgreina hvernig þeir Greenspan og félagar á bakvið hann í raun spiluðu spilunum með tilbúnu fé ... lofti einu, til þess að taka yfir hin raunverulegu verðmæti...  framleiðslutækin og sem þeir spila um alla jörð...  einhver mun verða hræddur hér og seigja.. já senda þeir þá á okkur leyniskyttur og jafnvel her?... jaa það á eftir að koma í ljós... ég er að vísu með leynivopn hér... algerlega andlegs eðlis... og get rætt um það síðar... dálítið ávænt vægast sagt...

  aðalatriðið hér fyrir mér er hversu skemmtilegt þetta er. Og spennandi.  Ísland er í margra augum í dag einskonar tilraunastofa í fyrirbærinu fall og ný endurreisn... hvað gera íslendingar í svona vanda? Heimurinn horfir á okkur. Það er ekki auðvelt fyrir okkar gömlu granna að fara með hernað á okkur... þó Gordon Brown gæti kannski verið til með að fá slíkar hugmyndir... þá eru fleiri sjónarmið í pottinum meira spennandi. Mun fleiri munu styðja okkur en vera á móti slíkri þróun...  Ég mundi koma heim ef ég fengi land aftur... (já ég var rændur af ríkinu... landið þjóðnýtt sem ég hafði keypt með hópi fólks) og fara að rækta skóg og grænmeti... og fjöldi annarra íslendinga sem nú eru útlagar þeirrar mjög svo mannfjandsamlegu stjórnarstefnu sem verið hefur við lýði á íslandi alla tíð og farið stöðugt versnandi...

þar sem öll tækifæri eru tekin af fólki nema þetta að selja drasl frá auðhringonum... og sama er að gerast um alla jörð...

Og það er að skapa almennilega samráðsaðferðir sem heimurinn mun gleðjast mest yfir og auðvitað landinn mest. Og svo sjálfbærnin. Og þetta ætti að verða markmið raunverulegs sjálfstæðisflokks. Og auðvitað hinna líka... altso þannig varð sjálfstæðisflokkurinn til í upphafi. Til þess gerður að landið væri sjálfstætt en ekki í vasa erlendra aðila sem hugsa bara um að sjúga úr því auðinn. Eða hvað? En flokkakerfið og fjölmiðlar munu jú væntanlega ekki hafa framtíð lengi. Jaa um sinn. Hið nýja samráðsform þarf sinn tíma til að forma sig...

Snúum bökum saman allir sem einn. Þessi menning og þetta fólk og þetta land er prófsteinn og leiðarsteinn fyrir mannkyn í vanda. Alla líffjölskylduna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband