25.9.2009 | 20:16
að velja úr hæfilega mikið af vandamálum og hæfilega af slökun og hæfilega líkamsnotkun
ég er búinn að vera í hléi frá umræðunni og á ferð og ekkert lesið af fjölmiðlagaspri eða glápt í nokkra mánuði... já því miður get ég engar myndir sýnt frá þessum ferðum... myndavélinni var stolið í Tallin... video og ljósmyndavél með töluverðu efni og sími og fleira... bísna furðulegur þjófur ... stelur ekki hljóðfærum og ekki hljóðnemum... jaaa.. ég semsagt fer í sambland af panikk og þunglund og já nálega geðsveiflu af ömurleika bara með því að skoða íslenskar fréttir. Þetter svo yfirmáta einhæft og gelt og ömurlegt... og alltaf sama fólkið gjammandi í þessu silfri með sama ruglið og hver og einn í sinni eigin tegund af afneitun og rangtulkun og skammsýni... að bögglast við að koma frá sér einhverri sýn og þó mest tilfinningablönduðum og hagsmunablönduðum patentlausnum... einskonar verkáætlun að greiningu og lausn vandans og með svo pólitisku upphrópi innámilli persónulegra skota... ótrúleg djúp gjá er á milli þeirra sem hanga á spenum auðhyggjunnar og hinna sem vilja ná með fætur til jarðar.
Umræðan er 99% skelfing og armæða
og gremja
og svo afneitunin... þessi mikla skepna sem getur breytt sér í hvaðsemer og sér allt í vitlausum stærðum og vægi..... þessi botnlausa smekkleysa í áherslum og alblinda á hvert er stefnt... í þessu fársjúka samfélagsformi sem ekki veit hvernig það kom til og sem ekki veit hvert er stefnt og sem ekki hefur samráðsform heldur einskonar lymskufrekju og blekkingarvefi að leiðarljósi... andlitslausa mafíustarfsemi ... og mútur ráða
er hægt að hugsa um eitthvað áhugaverðara en störf alþingis og blaður peningamanna og blaðurmanna?
netið er vonbryggði
það skilar sér hægt inní umræðuna.. góða efnið
efni þerra sem eitthvað hafa að seigja
efni þeirra sem sjá vítt og um viðernið heimsins og mannsins... hvað þessi skepna fór í gegnum til þess að úr varð eldapi á eyjunni í isnum... og hvernig þessi vera lifði af og lærði... já hvernig svo valdnýðslan þróaðist... án greiningar á því hvur við erum... og hvernig við komum okkur í þessar hörmulegu aðstæður sem við sitjum í hér og nú. Með aðal áherslu á vald og drottnun... en enga heildarsýn... og þar við situr ... þar sitjum við föst.... við sjáum ekki hvar vð erum stödd fyrr en við fáum viðmið... helst upplifum viðmið... annarskonar form en það sem við búum við. Sumsé ... við náum ekki að velja rétta leið útúr vandanum fyrr en við sjáum að það er til heimur án og handan peninga ... fyrr en við sjáum þau verðmæti sem við viljum hlúa að sem miðjuna en ekki peninga og vald sem höfuðatriði... við erum að byrja að rumska þegar við erum farin að velja úr til þess að hlúa að góðu líkams og hugarástandi... og hlúa að samveru.. hlúa að samkennd og heildarsýn á manninn, dýrið og allt líf á þessari jörð í samhengi.. það eru svo ótrúlega fáir sem sjá yfir og handan við nef sitt... sem skynja samhengið... ótrúlegt nokk... sem sjá að við erum einfaldlega dýrategund... stjórnlaus, frekar ómeðvituð... oftlegast í einskonar hóptransi... algerlega ofurupptekin af sjálfumokkur og þörfum okkar... alltof yfirspennt... að kunna að slaka á og einfalda líf sitt og að ná jarðtengingu... hæfilega mikið af spennu og hæfilega slökun.....
"einvera" og samvera... altso "einvera" er þá einn með öllu sem er... eiskonar hugleiðsla... varurð
fjölmiðlar eru taugaveiklaðir og ruglandi... yfirspenntir og yfirborðslegir ... og allan tíman í raun einskonar tæknilofgjörð... tæknistælar og já auðhyggjusöngvar... græðgisspangól og þikista ymiskonar... og gerfiþarfir
ég var á íslandi í vetur sem leið og finn núna þessa sömu "brælu" af skelfing og ömurleika umræðunnar og í vetur...
þá er eldurinn betri á að horfa og bjarkarilmurinn... og baðhúsið
ég var að safna viði í kotu í dag í skógi
haustlitir...
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.9.2009 kl. 11:45 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.