skynja mig sem "útlaga"

einhverskonar nýðherferðar...

sé ekki alveg ennþá myndina sem dregin er upp af mér og hverjir leggja þar helst til efni

en ég finn andblæinn .. þó ekki allstaðar, viss hlýja finnst líka, en bara daufari

þar á ofan kemur almennur doði og hræðsla og ofsóknaræði

þar á ofan hef ég jú hagað mér mjög einkennilega í minni sögu, ég veit það... ég hef misst stjórnina

mest þó áður er ég notaði áfengi og fleira jafnvel á vitlausum stöðum... 

nú er ég í afar hógværri stöðu... þjónn fornrar draumsýnar 

um algerlega að fara í grunninn..

hvernig við náum tengsl við jörðina

að gera sér hús sjálfur af efnum jarðarinnar og setja niður jarðávöxt, þetta er lúxus, hér er mesta blessunin, ef við getum fengið að hjálpa okkur sjálf... finna leið til að lifa einfaldara lífi

svona einföld eru mín áhugamál...

ég kannast ekki við að vera í stríði við nokkra sálu

en finn fyrir stríðum á mig

vera má að ég þurfi að finna mér vetursetur annarstaðar... um sinn.

stríð hef ég aldrei sótt í og tel þau tilgangslaus

tel í raun alla vera álíka seka og álíka saklausa

og að þá ábyrgð öxlum við þegar við erum sátt við að breyta til og axla ábyrgðina saman í þorpsfyrirkomulaginu og beina lýðræðinu

og að við eigum ekki landið, frekar að landið eigi okkur og við séum einskonar passarar

halda þessu sem mest eðlilegu miðað við hitastigsbelti og rösklega það kannski... aðstoða gróðurinn svolítið á meða við klæðum landið umhyggju okkar

allir fá aðgang að landi... 

  allir fá virðingu til að tjá sig

    allir séðir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband