10.1.2009 | 07:17
ég vil að þú vaknir núna!
(og ég tala við migþig... bæði þig og mig)
og vitir að ég er góður, ég er sjóður, ég er fróður
ljóða óður
ég vil þér og mér vel
vil næði vil fræði vil gæði
ég vil frið og fallega kósí staði
og ég vil hafa það gott í baði
ég vil baka, ég vil rækta ég vil að vaxi viður ja það er góður siður
og að aukist inra og ytra friður
hann messar hressar kviður
eitthvað í þessum dúr
þá verð ég hressari
þú þaddna skessan mín
koddu nú í kofann minn
að sofa við kinn
að kveðast á við himininn, stjörnusalinn!
og kveikja undir eldi sent að kveldi
ég sæki jú diskinn og karbullu og tómatinn
bláberin, sveppinn og gulrótin
og svo bara sóólin rís og hitinn er í keri
kannski með sotlu sméri
og ég gann bara ekki annað
en að hafa það gott
æi sæktu nú pott
elskulega skott
við erum jú flott
einhvernvegin æfin líður
hver situr þaddna úti og bíður
ja þar fer frekar fríður svipur
hvítur fótur og lipur
og hver fer þar með ótrúlega kærleiksríkt hjarta
ansi hlýtt er það mjúka ljósið bjarta
æ þetta má aldrei hætta
fyrr en þig ég hef kætta
sjáðu núna blessunin
núna kemur hlessa inn
skessan mín og messuvín
ó þessi blessuð sýn
ég kem inn til þín
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.1.2009 kl. 15:51 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.