að vera fátækur er ekki það sama og að vera fátækur í andanum sagði ákveðin aðili forðum..

og það er svo mikið inníokkur sem við höldum að sé ekki neitt merkilegt... en þar er mikið djúp og næmni manneskjunnar er svoleiðis að, altént er ég svoleiðis að ég finn hvað fólk er að hugsa altso tilfinningalega um langa vegu... jafnvel hinumegin hafs.  Og ég tel að við höfum þetta öll í okkur.

 Mikil sorg er hve fátækir og sjúkir og illa sett fólk ásakar (einsog kerfið og læknarnir gera, allt er sett á einstaklingana, aldrei neitt að kerfinu) sig og sumir refsar sér sjálfir, t.d með því að borða lítið eða mjög óhollt og verður þá líðanin enn verri. Og svo eru vímugjafarnir og þar er áfengið langverst og svo spítt eða rídalín og það kemur frá læknonum og já læknadópið slagar í að vera ályka mikil blóðtaka og skemmdarverkastarfsemi og áfengið. Aðrir vímugjafar einsog kókain eru bara fyrir lúxusliðið og koma litið fyrir hjá fátæklingum.  Vissulega eru ótrúlega margar leiðir til að refsa sjálfumsér og þetta gerir fólk á öllum aldri og að jafnaði er það falið eftir mætti. Þessvegna eru þessir einkahjálparar (samanber Emily í frönsku myndinni) svo gífurlega mikilvægir. Í rauninni ætti þetta fólk að vera á launum við þessi störf en það er oft erfitt að koma því við að meta svona störf og sjálfboðavinna af ýmsu tagi kæmi best út ef við værum bara öll á lágmarks borgaralaunum og má vera að slík laun komi til tals þegar landið hefur létt af sér lúxusafætunum, sem einskonar millistig á meðan fólk er enn að komast á lappir með að rækta ofanísig og sjá um sig sjálft.  En sumsé hér er her manns í landinu sem þarf hjálp af ýmsu tagi við að efla sig hugarfarslega ekki síður en varðandi afkomu. Og ótrulegt er hvað miklar gersemar fara þá að vaxa, þegar sjálfsreiðinni og hatrinu linnir. Þá bara fossar fram kærleikurinn og þetta sér maður oft þegar fólk frelsast einsog kallað er. Þá alltíeinu skýn sól í myrviðum hjartans. Þessvegna er mér að mörguleiti hlýtt til Fíladelfíu og kristinna safnaða. Þar er mikill kærleikur og gott starf unnið. Guðið er vissulega til í hjörtum manneskjunnar. Og ég seigi oft einsog pabbi að guð búi í hjarta fólksins. Og einsog ég sagði í upphafi þessa pistils. Ég hef þann hæfileika að finna í hjartanu þegar annað hjarta sendir til mín einlægan góðvilja. Semsagt þetta virkar einsog bænin... ja ég tel að það sé einhver orka sem er send á ljóshraða milli hjartna. Og samkennd og hlýja koma fram og ég sé yfirleitt andlit sendandans í hjarta mér. Þetta gerðist til dæmis rétt áðan. Með manneskju sem ég kynntist á Rótinni. Veit ekki af hverju hún sendi mér svona góða strauma. Máski var hún að lesa eitthvað eða huga til mín. Ég kannski spyr hana næst þegar ég hitti hana. En sumsé við ræddum um guð í hjartanu og ég sagði að Guðið með stóru G er þá mörg hjörtu sem ræða saman og senda orku í ýmsum tilgangi, nottlega alltaf góðum og óeigingjörnum tilgangi. Það er semsagt til guð í mannheimum og sá guð vinnur með hjartaorku. Því seigi ég. heimurinn er dásamlegri en hann oft sýnist og mikið djúp innra með okkur og ekki mikið vitað um hver gefur mest. En það er alveg öruggt fyrir mér að þeir sem heimta mikið fé fyrir sín góðu verk eru oftlega ekki að gera eins mikið gagn og þeir sem vinna með hjartanu. Og oftast án þess að nokkur viti. Einar á Einarsstöðum er undantekning hér, hann varð þektur fyrir sína fjarlækningar og kærleiksverk. En það kom þannig til að Lára miðill sagði honum að hann hefði þessar sérgáfur og bað hann að vinna með þetta. Það gerði hann síðan alla æfi. Og hjálpaði nær öllum fjölskyldum í landinu meira og minna. En þeir sem hafa mjög lokað hjarta skilja þetta ekki og gera gis að. En þeir sem til þekkja vita og svona er það. En bænin hjálpar og hjartastraumar. Það er ljóst fyrir mér og ég tel að þúsundir Íslendinga hafi af þessu reyslu. Heilolouu! Guðið er til hvað sem Nietse hafði um það að seigja en nú er hann jú dauður kallinn en guð bara þolanlega hress. 

Ég veit ekki hvort nokkur náði því hvað guðið er í mínum heimi, jú ég er ekki að tala um guð bókenntanna, ég er að tala um upplifunina... samkenndina, þetta net hjartavera sem skynja saman, eru tengdar , myndar guðið.. orkufyrirbæri sem er tengd vitund þessa fólks sem er tengt og allir eru í þessu neti, ekki allir endilega tengdir mér en ég er tengdur sumum sem eru svo tendir öðrum rétt einsog þetta feisbúkkdæmi... þetta er líka þarna í orkuformi

í gegnum hjartað... það er altént einsog ég skynja þetta..

sumstaðar er netið slitið eða hálfslitið eða alveg dautt signal... hjartað lokaðist, annað hvort báðumegin eða öðrumegin og að mestu en kemur kannski óvænt inn

á stundum, sumt er allan tíman, það upplifi ég sem ást 

stabíla hreina ást... sem alltaf lýsir, þegar ég finn viðkomandi allan tíman í hjartanu

altént þegar ég er að skoða tilfinninguna í hjartanu 

það er yndisleg tilfinning og heilög,

heilagt samband 

  einnig það getur horfið, en sumt hverfur aldrei, það eru svo mörg hjörtu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband