16.4.2010 | 08:02
hvað þurfum við?
hverskonar samráð þurfum við?
fólk sem lokar hvert annað af og læsir sig og er læst inní klefum?
við þurfum hringborðsumræður
og umhverfis eld og ljós umræður
að virkilega sjá hvert annað og hinar raunverukegu þarfir
opnar umræður út í náttúrunni í heitum böðum þing
samræður jafningja þing
stundum er best að þinga með fólki sem maður er að kynnast í fyrsta skipti
þar er allt ferskt og ekkert fyrirfram gefið
við þurfum alveg nýtt þing.. það er einsog við séum í dönsku teiti á 19. öld.. þar sem aðalsmenn semja við kóng sinn. Við þurfum að tengja þingið og raunveruleika þjóðarinnar. Umræður og lög þessa þings eru loddaramennska... brúðuleikur.
Við þurfum máski allaleið til baka í sandkassann?
eða hvernig samráð viljum við?
við erum með útbrunnið kerfi fullt af útbrunnu fólki hugsandi úreltar hugmyndir... hugmyndir sem valda mun meiri vandamálum en þau leysa... hugmyndum sem ekki er ætlað að leysa neinn vanda... frekar að viðhalda og auka við vandann... enda má ekki sjá vandann og þarafleiðandi ekki ræða neitt að viti...
og það er samráð án áhrifa peningavaldsins á ákvarðanatökur
það er fleira mikilvægt en peningar
maðurinn lifir ekki á brauði einu saman og vatni
er frelsarinn alveg ónýtt viðmið? var hann að kaupa hlut í banka?
Vildi hann ólmur selja Rómverjum Gyðingaland eða öfugt? Nei ég á því að ekki margir skilji hvað hann hafði í huga. Samkvæmt gömlu kristninni þá erum við á hraðleið til helvítis. Það er bara verst að Helvíti er sami staðurinn og Himnaríki og þar er bar núna. Og allt til sölu. Eða hvað? Muna menn eftir einhverju sem ekki er til sölu á þingi íslendinga?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:59 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.