hvenær er komið nóg? af fólki og vexti og aukningu og já vöxtum?

innleg í umræðuna um HVENÆR ER KOMIÐ NÓG AF AUKNINGU.... hvenær er komið nóg? er einnig gagnrýni á hugmynd auðhyggjunnar og bara banka um vexti.. sem alltaf kallar á aukningu og hvernig er jafnvægissamfélagið?

ég seigi því fyrr því betra


fjárfesting? (væntanlega er átt við erlenda fjárfestingu nr 1 og 2 og 3)

Greinilegt er að í greiningardeildinni er greind og hún er greindarleg enda með gleraugu og búinn að lesa mikið bókhaldstölur og línurit...  best væri auðvitað að selja allt sem hægt er að koma í verð, sölulaunanna vegna.. og hagvaxtarins... en hagvöxtur er ekki rétta orðið... það sem er hagvöxtur fyrir ríkið hefur sjarma fyrir þá sem þar sitja við fjárlagagerð en heimilin til dæmis auka hagvöxt sinn á allt aðra vegu, til dæmis með matjurtagarði sem gefur fjármálaráðherra og innflyténdum og bændum minni "hagvöxt" ... vöxturinn fer til fárra og fjölskyldurnar eiga að vera vinnu og neysludýr... það sem bankamenn vilja er einfaldlega að farið verði í álver og allrahanda landssölu og auðlinda svo þeir beri meira úr bítum .. jú það er greindarlegt fyrir þá sem sjá um þessar sölur en eftir stendur meirihluti landsmanna slippur og snauður og kannski þræll  eða á flótta... ég geri mér alveg grein fyrir að best væri fyrir banka menn ef við dræpumst bara sem ekki viljum selja land forfeðranna til að létta fyrir að komast í "5. gír"

 

einkavæðum allt draslið og seljum það svo í snatri gæti hún alveg eins hafa sagt 


mbl.is Ísland er fast í fyrsta gír
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hinar lösnu staðreyndir

http://www.trueactivist.com/the-large-families-that-rule-the-world/

 

jæja við hverja er að eiga og seigja menn að þeir kunni ekkert til verka við að sölsa allt undir sig? Og stjórnin vinnur fyrir þessa einsog síðasta stjórn og kreppurnar framleiða þessir til þess að geta hamstrað á brunaútsölunum og brunasérfræðingarnir og fjárfestarnir eru þessir... hvað eiga þeir mikið af íslandi í dag? og hver eru viðbrögð landans við því? ahó!


hér er mikið safn upplýsinga um blekkingaleik bankaaflanna og fjölmiðla þeirra

http://gagnauga.is/index.php?Fl=Greinar&ID=182

 og ekki er allt sem sýnist við fyrstu sýn í fjölmiðlaleiknum... þetta fer mikið eftir því hver framleiðir fréttina og í hvaða tilgangi

ansi mikið vægast sagt

nú geta menn bráðum farið að vega og meta hve mikið sannleiksgildi er í Landnámabók Ara fróða... já hér er það prestur á vegum biskups sem skrifar... og hverrar ættar var sá biskup.. já hver var vilji karlkyns biskups af þessari ætt? og hvers vegna? .. og hversvegna finnast enginn skrif um landnám annars eða gagnrýni á Ara .. sem hann biður þó um ... það má teljast ansi grunsamlegt... en víst er að ekki lægði borgarastríðinu í landinu með þessari bók .. svo vitað er að ekki voru menn mjög sammála á þessum tíma... nei kirkjan sá um að ljúga fortíð Íslands út úr huga þjóðarinnar... einsog hún gerir enn.


mbl.is Börn pyntuð á skelfilegan hátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

æt yfirstétt (1% í gúanó á ári er bara heilsusamlegt fyrir stofninn)

velti fyrir mér í þungu árferði ef menn eru svangir á útmánuðum... og lítið að hafa.. hvort ekki sé þá kominn tími á að semja frumvarp um grisjun á íslenska stofninum (kannski hægt að hafa einhver svæði þar sem ekki má veiða) sérílagi vel stæða... kannski jafnvel bara 1% af stofni á ári.. já yfirstéttin ætti að vera æt... þokkalega alin
mbl.is Griðasvæði hvala verði stækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei það er slæmt (eða hversvegna ég vil alls ekki gefa fullveldi íslands til brussel ?)

ef einhverjir hafa áhuga á að skapa betra samráð á íslandi, þá vil ég seigja að ég sé ekki að ákvarðanir i Brussel séu lýðræðislegar ... þetter allt í höndum formanna flokkanna í stærsti löndonum.. þýskalandi og frakklandi sem stjórna.. og islendingum mundi skipað að standa og sitja eftir vilja "massans"... þannig er og að ekkert lýðræði fyrirfinnst í álfunni.. allt meira og minna í höndum goldmann sack og félaga svo ekki er ákjósanlegt tel ég að sökkva sér í slíkan pott... hitt er áhugaverðara að vera lítil eining sem nær að ræða saman.. þjálfar sig í góðu samráði.. síðan ef við erum farin að sjá almennilegt samráð virka og við með þá rétt kjörna fulltrúa (en ekki einsog núna, auðsveipa peningavaldinu og þar af leiðandi rangt við haft í valinu núna með áróðri frá peningavaldinu) og lýðræði jafnvel fleiri nágranna einnig að byggjast upp.. því hugmyndir og verklag sem virkar berst hratt til annarra... þá má fara að skoða alvöru norrænt samstarf og svo alvöru evrópusamráð finnst mér og þessvegna vil ég alls ekki inní þessa evrópu einsog hún er fyrir framan okkur í dag.

(svar við "Evrópusanbandið er fínt" eftir Illuga Jökulsson)


hvaða leið er fær og ákjósanleg? hryllings-hrærigrautur auðhyggjunnar eða beint almennt samráð?

 og hér er Hudson með virkilega athyglisverða greiningu á stöðu íslands... ég hef sagt þetta frá byrjun.. þessi hrun eru skipulögð af bankamönnum..já  eigendum IMF... svo enginn ástæða er til að standa í skilum við svona mafíuklúbba...  Við mundum taka svolitla dýfi en koma út 1000 sinnum traustari og ennfremur brjóta ísinn í umræðunni um hvaða leik peningafólkið hefur verið í... Eða ætla menn að það sé alsendis óvart að meirihluti eigna og fyrirtækja á islandi í dag er í erlendri eigu.. og það sem verst er.. bankarnir? Hér hafa mast bandarískir bankamenn rænt hálfu íslandi og menn vilja ekki þykjast taka eftir því!!!!

 

 Eru allir á eitt sáttir að keyra þessa stefnuleysu í hrærigraut auðhyggjunnar.. því sú stefna er þjóðarmorð... endalok íslensks samfélags á örfáum áratugum ..   valið sem við höfum hér gapandi fyrir framan okkur er lifandi beint lýðræði og samráð sem öll þjóðin er með í eða alræði siðlausra og enginn íslensk þjóð þar lengur.. bara yfirgangur og loks auðn.. 


Án alvöru samráðs og lýðræðis verða öngvir íslendingar hér við lok aldarinnar

það er nú bara svo alvarlegt að ef við náum ekki að byggja upp raunverulegt lýðræði sem meirihluti þjóðarinnar getur tekur þátt í og algerlega óháð peningavaldinu og áróðurvélum þess, þá verður allt selt áfram sem hægt er að koma í verð og Ísland verður yfirtekið af þeim öflum þar sem enginn virðing er fyrir fólki og náttúru landsins... og svo með mjálm menningarklíkunnar þar á ofan.. þar vilja menn fá þægileg störf í Brussel.. og hvert fer þá sá partur af þjóðinni? Og þeir færu þá með fjöreggið sjálfsákvörðunarréttinn í úlfskjafta...

hinsvegar ef við getum byggt upp lýðræði sem ræður við varginn græðginnar þá má vera að Evrópa geti eitthvað lært af okkur og í framhaldi leitt til rauverulegs Evrópusamráðs.. þar sem fólkið tekur þátt en ekki bara græðgisöflin.. þá erum við á réttri braut... Það þarf að leggjast vel á árarnar ef þetta á að ganga eftir því allt of margir trúa í raun á yfirgang og blindingja an eða hvað á maður að halda? Hvar er lýðræði sem stendur undir nafni? Hvar eru þeir sem sundurgreina hvað þarf til til þess þjóðin sé með valdið en ekki hrægammar? Getir þú komið þessari umræðu í gang og fundið fólk, sem er til með að sundurgreina lýðræði þar sem peningafólkið hefur enginn áhrif umfram aðra, þá er mikið unnið ... grettistak!
En takist það ekki.. þá verður ekkert eftir af því sem við köllum íslenskt... enginn menning, enginn tunga... bara iðnaður og yfirgangur.. og líklega allt morandi í kínverjum. Og þó ég hafi ekkert á móti Kínverjum og frekar hitt að ég meti þá mikils... þá vil ég ekki sjá þá eyðileggja smáþjóðir...

altso UMRÆÐA UM HVERNIG RAUNVERULEGT LÝÐRÆÐI LÍTUR ÚT Í VERKI!!! Af stað nú... hugsum þetta saman! Er hægt að taka fólk alvarlega sem vill breytingar ef menn nenna ekki að sjá fyrir sér hvert förinni er heitið?

Í mínum augum er það alveg ljóst að það er verið að bora höfðinu í sand, það er verið að loka augonum fyrir grundvallar vandanum... erum við að halda áfram í græðgisleiknum eða erum við að fara í raunverulegt samráð? ... menn hrópa um vændi og yfirgang og græðgi og óréttlæti en allt er þetta eru afleiðing af því að við tölum ekki saman og við virðum ekki hvert annað og hlustum ekki á hvert annað vegna þess að við erum öll í einskonar samkeppni... slag um hver fær hvað ... að ekkert af þessu læknast fyrr en við tökum skrefið og göngum út úr peningaleiknum og förum að tala saman og virða hvert annað... og það kallar á samráð.. að við hittumst... sjáum hvert annað... það kallar á LÝÐ-RÆÐI! Það á ekki að hangsa neitt með það... fulla ferð... Umræða um hvernig alvöru samráð er í verki takk!

  flýtur nú að feigðarósi..

 

 


Alþingi íslendinga er ekki að hjálpa þjóðinni.. þar er mest talað út í hött og öll mál þæfð sem skipta máli

ónýtt er í raun fyrir mér, alþingi íslendinga

vegna þess að þar er ekki fólk sem vill aðskilja vald peninga frá beinum áhrifum í samráðsþjónustunni og sama má seigja um hvernig skoðanamyndun er.. með alla þessa fjölmiðla sem reknir eru af peningasjúkklingum. Tel að best væri að losa sig við alla fjölmiðla nema netið um sinn og síðan þarf beint samráð. Talvan getur bara verið aðstoðartæki.. ekki aðal verkfærið í samskiptum. Það má færa ótal rök fyrir því. Og blessiðig.. hin góðu áhrifin..

og enn spyr ég... hver á bankana sem eiga nú meirihluta allra fyrirtækja og eigna í landinu skilst mér? Er einhver þarna úti sem veit svar við þessari spurningu?

alvöru lýðræðið.. sem enginn nennir að skilgreina né heldur ræða að gagni..

sjá hlekk:

http://blog.eyjan.is/margrett/2011/10/21/ny-leid-ny-stjornarskra/?fb_comment_id=fbc_10150339107796951_19383939_10150339150466951#f6fcef4af1daca

 

og mitt svar kemur hér:

sæl Margrét.. og takk fyrir þín fyrri skrif.. jú ég er sammála því að tillegg stjórnlagaráðs er til bóta miðað við það sem nú er og því rétt að kalla það skref jákvætt frekar enn hitt, hinu má alls ekki gleyma að þetta er einungis fyrsta skrefið í átt til raunverulegs og réttláts samráðs því margir hafa bent á að að raunverulegt samráð kallar á þátttöku allrar þjóðarinnar eða allra sem vetlingi geta valdið og ennfremur það mikilvægasta sem mér finnst að ekki hafi verið nándar nærri farið ofaní saumana á hjá stjórnlagaráði og yrir höfuð í allri umræðunni..er hvernig við höfum samráð án þess að peningasjónarmið ráði svotil öllum ákvarðanatökum og ekki sýst vali fulltrúa á þing vegna þess að frambjóðendur þurfa á kynningu að halda í fjölmiðlum sem er of kostnaðarsamt fyrir flesta nema þá sem selja sig peningavaldinu.. eða eru handbendi þess og yfir höfuð hvernig beint lýðræði með þátttöku allra sem vilja lýtur út í raunveruleikanum.. jaa fyrir utan mínar tillögur sem ég hef ekki séð ræddar... sem ganga út á að skipa öllum landsmönnum í 100 manna samráðshópa sem hittast á vori yfir hálfsmánaðar tíma og elda saman og stunda skemmtileg samskipti og umræður og böð og velja svo einn samráðsfulltrúa á miðsumarþing... á miðsumarþingi eru þá 3300 manns sem skipa sér í 33 deildir og hver deild er þá að kynnast í tvær vikur og velja svo einn samráðsfulltrúa við lok þings... þá erum við með 33 fulltrúa á þingi í eitt ár... næsta vor hittast grasrótarþinginn aftur... þetta er lýðræði og almennilegt samráð sem öll þjóðin getur tekið þátt í án flokka og án peningavalds... og hér er form sem tryggir að gott fólk og fólk í góðu jafnvægi fer í samráðstörf og þar með betri ákvarðanatökur og ábyrgari og þar með minni óánægja þegar öll þjóðin er á bakvið þetta fólk sem fer með ábyrgð hverju sinni og jafnvel sátt og þar með allsenginn þörf á eggjakasti og hávaðaframleiðlu... menn fara þá brosandi um og sýngjandi og dansandi þó þeir þurfi ekki á víni að halda til að vera ánægðir og allir eru vinir og bjóðandi hver öðrum í te og huggulegheit... ekkert baktal og ekkert mobb...(sem nú er að drepa allt meira að seigja innan raða mótmælenda eru menn að mobba hver annan og svo hefur verið lengi... enn er bara með versta móti síðustu árin finnst mér) hoiii það verður mikil uppgötvun fyrir marga að upplifa að það er hægt að hafa gott samráð og réttlátt og jafnvel bara stórskemmtilegt... (ég er á því að flestir íslendingar trúi ekki á samráð... þeir trúa á sterka leiðtoga.. því miður og vegna þess líklega að þeir hafa aldrei orðið vitni eða tekið þátt í réttlátu og jafnvel ánægjulegu samráði.. þeir þekkja bara ofurmennið sem þeir krjúpa fyrir og vilja vera sjálfir) krókaleiðir eru mönnum ansi kærar í þessu efni og margil vilja þvælast fyrir ... en semsagt .. þessi ferð hefst á einu skrefi... takk Margrét fyrir þitt innlegg hér og alla tíð.

 

eftirmal: og svo komu margar athugasemdir jákvæðar eftir þessa umsögn þarna á eyjunni... nánast fyrsti vottur þess að menn hafi tekið eftir því að þessi hugmynd væri góð... hm.. 

það er nefnilega svo furðulegt að allur þessi skari af mótmælendum og ofur meðvituðu anarkistum og lýðræðisunnendum hefur ekki tekist að sjóða saman eina einustu tillögu um hvernig þetta almennilega raunverulega beina samráðs lýðræði lítur út í reynd.. en hér er tillaga sem leysir öll okkar vandamál um aldir alda og í nokkur ár hef ég tjáð þessa hreinu einföldu leið... svo að ég er farinn að halda að það sé ekki áhugi á beinu og góðu samráði.  Áhuginn beinist mest að því að grenja viðstöðulaust. Hvernig væri að tala saman í ró um hvaða leið er fær?

 jaaa hér er ein athugasemd:

Halldor Carlsson · líka furðulegt hvernig menn bregðast við, og höfða til tilfinningaraka, ef maður dirfist að gagnrýna þessi stjórnarskrárdrög (þrátt fyrir að þetta sé meingallað plagg, og allsendis óhæft sem stjórnarskrá sem á að lifa einhverjar x-margar kynslóðir) - þess er krafist að maður taki afstöðu með annaðhvort gömlu stjórnarskránni eða drögunum að þessari nýju.

ég get ekki sætt mig við það, þó að ég skilji fullvel þörfina á nýrri stjórnarskrá (sérstaklega þar sem hún inniheldur ákvæði sem geta slegið vopnin úr höndum gerræðislegrar valdníðslu yfirvalda)

- þessi drög innihalda ákvæði um afsal fullveldis landsins
- þessi drög innihalda ákvæði um að ein trú sé viðurkennd
- þessi drög innihalda þó nokkur ákvæði sem hafa loðna og teygjanlega viðauka (td. ,,þó getur [þessi eða hinn] ákveðið annað ..'' bla bla -

hver??

svar mitt:

Tryggvi Gunnar Hansen ·

Jú.. ég er sammála því að það er margt að í þessum tillögum... almennt finnst mér þetta of flókið... grunnlög eiga að vera einföld að þau séu skiljanleg jafnvel börnum... og ég verð að viðurkenna að ég hef ekki komist í gegnum þennann þumbaralega valdboðstexta... og þessvegna vissi ég ekki af því að þar væru ákvæði um afsal fullveldis landsins.. og spyr því hvernig sú grein sé og í hvaða tilgangi inni?.. og sæll og blessaður Halldór.. almennt hafði ég þó þá trú að einhverjar ræfils umbætur væru í þessu plaggi.. svo sem þjóðaratkvæðaréttur... n vissulega er ég alveg sammála því að þessar tillögur eru í grunninn tilraun til að bæta botn á ferju þ.e. samfélagsformi sem er þegar sokkið til botns í sjálfsblekkingar gagnvart peningaleiknum... betra væri að fara beint í heiðarlegt samráðsform en að paufast svona hægfara með eitt lítið skref eftir margra ára puð.. samanber bylting eða hægfara þroski???  ja hvað er í bígerð hjá samfylkingunni heldurðu Halldór? er uppi áætlanir um að þingið afhendi samráðsábyrgðina til lobbíistanna í Evrópu? 
 
 Alþingi er nú yfirfullt af glæpamönnum og svo slatti af mjög meðvirkum einfeldningum... og það er formið og hefðin...   Sama má seigja um fólkið í landinu. Mótmælendur eru mikið þeir sem þessir glæponar og einfeldningar og hafa sært og hlunnfært með ólögum ...  

 


Tvær grundvallarspurningar sem mér finnst mjög aðkallandi að fá svar við frá öllum fulltrúum í ráðinu!

sent inn sem erindi til stjórnlagaráðs 9. júní 2011

 

Ég spyr alla í Stjórnlagaráði:

--- Hvernig á að stemma stigu við peningavaldinu... hvernig það í krafti eignarréttar notar fjölmiðla og kaupir flokka og stjórnmálamenn (og þá er bein kosning einstaklinga og stjórnar á sama bás)
og hins vegar í raun höfuðspurningu og nr 1... hvernig á að tryggja þátttöku allra eða sem allflestra í ákvarðanatökum... hvernig valdinu verði komið aftur til þeirra sem það eiga... þ.e. íbúa landsins? og úr höndum getulausrar og spilltrar atvinnustjórnunarstéttar.

Sem og margir góðir menn hafa bent á s.s. Andrés Magnússon og Páll Skúlason. Að lýðræði er vinna sem öll þjóðin þarf að taka þátt í... þeir sem ekki taka þátt verða hlunnfarnir.

Ég vil sjá þetta rætt í alvöru hvernig stjórnarskráin geti skapað ramma um beint lýðræði allra landsmanna... og ekki bara fulltrúalýðræði... heldur samráð allra landsmanna, þar sem fjölmiðla er ekki þörf eða peninga við kynningar á fulltrúum og þar með að fjárráð frambjóðanda skipta ekki máli. Og þar með að við getum átt von á annars konar fólki sem fer í samráðsþjónustuna... Fólk með vit og samkennd með öllu lífi. Og skilningi á hvernig varðveita á litla þjóð til framtíðar. Annars er voðinn vís.. að allt verði selt siðlausum blindingjum og ekki bara mest allt einsog nú er... að fáein prósent þjóðarinnar eru búin að sölsa allt undir sig og er að selja erlendum ofurríkum spákaupmönnum allt sem hönd á festir og á leið uppí topp og meira og að Íslendingar sem þjóð leysist upp í vind og skít græðginnar... flytji og gleymi.

Þetta er skilningur þjóðarinnar á hvað gerðist við hrunið og ég vil sjá og heyra þetta rætt ofan í kjölinn og verðugar tillögur til bóta.


Tryggvi.

 

og linkur... á umræðuna er í umsagnardálknum hér undir( jaa ég fékk ekki tengilinn fram hér).. en furðulegt nokk hafa bara 5 manns lagt orð í belg enn... er þjóðin steinsofandi fyrir þessari mikilvægustu vinnu sem nú fer fram á Íslandi. !!! SOS vaknið... hér er verkefnið SAMRÁÐ ÞJÓÐARINNAR!!!

 


athugasemd vith fyrirsögnina "islenskir rithöfundar gagrýnislausir"

samanber: http://www.smugan.is/menning/baekur/nr/5905

og setningin: "Það er erfitt að standa uppréttur í íslensku samfélagi. Þeir sem þó gera það eru einmanna og útskúfaðir,“ ... segir Guðbergur Bergsson rithöfundur.

jaa ég er meth hitasótt og eiginlega hálf sloi... en sumsé... ég er á thvi ath thath séu ekki bara íslenskir rithöfundar sem sitja í sleni methvirkni og ráthaleysis.. en hvath um thath.. Guthbergur tekur Thor Vilhjálms og sig sjálfan sem daimi um thau sem standa utangáttar... "Enginn gefur því sem gerðist andartaks gaum eða gerir raunverulega tilraun til að skilja hvað fór úrskeiðis,“ segir hann ennfremur... og thar meth ekki hann sjálfur vaintanlega... en hér er semsagt ein mikilvaig villa... sem farith hefur framhjá honum og fleirum.. (aaa.. ja hvart ég kalla mig rithöfund, thath er spurning hér, en skrifath hef ég kannski ekki minna en margur sem kallar sig rithöfund... ) og villan er sumsé thessi ath ég hef sundurgreint peningavaldssjúkleikan og lagt fram grunnhugmyndir af hvernig vith komumst frá thví ath láta graithgina og valdsjúka stjórna okkur og thessar netsíthur til vitnis um thath.. og get ekki betur séth en ath ég sé sá eini. En vist upplifi ég thögnina og útskúfun.  Guthbergur og Thor eru ekki einir sér thar á bekk.  Bara verst er ath ég kem ekki auga á theirra skrif meth skilgreiningu á hvath fór úrskeithis.. og ekki heldur leith útur vandanum.

Já ég er semsagt lasinn... thungir og ákafir vírusar herja..

authvitath finnst mér that skítt ath thessar 330000 hraithur hafi ekki tekith eftir etha né sýnt thessum tillögum áhuga og tel thví ath mannfélagith og mannfólkith sé svo sjúkt og fjarri thví ath "standa upprétt" (einsog Guthbergur telur sig og Thor gera..og sem ég geri enga athugasemd vith) ath jaaa ekki sé áhugi á heilbryggthara samráthsformi og thar meth ath skrif rithöfunda skipti ekki máli...  né heldur ath standa uppréttur ethur á hnjánum liggjandi etha höfthi


Gamn að heyra í Þórhildi

http://dagskra.ruv.is/ras1/4527434/2010/06/13/

viðtal.. ja nánast eintal Þorhildar Þorleifsdóttir

margt mjög gott henni.. sérílagi athyglisvert þetta með ofbeldi meirihlutans yfir minnihlutanum... gagnrýni á þetta rugl sem við köllum lýðræði!!! Andstætt við samræðu.. samráð (consensus) Þetta er grundvallarpunktur. Norrænt Ting náttúrufólks er með consensuslýðræði (sjá lightisee.blogspot....com)
og að sala á kynlífi sé ofbeld... og viðbrögð við fátækt.. skörp ádeila og ef ég fer lengra inní þetta söludæmi... hvar byrjar ofbeldið og hvar endar frelsið í þessum "allt til sölu heimi" siðleysi og með fátæktina.. í heimi þar sem öllu hefur verið stolið í þessu einkaeignarréttarbrjálæði.. þessi risa nauðgun sem er í gangi.. valdið sem jagast á öllu lífi gægist hér inn. Jæja... ég mæli með þessum þætti. Þórhildur er stórbrotin og persónuleg! Og hressileg. Það veit hún að verður að vera aðeins með.. Og dúndur einlæg.

 


einfaldara og þægilegra líf?

við mundum gera okkur lifið svo miklu einfaldara ef við áttuðum okkur á að lífið gegnur út á að finna og safna og rækta fæðu og njóta ávaxtanna saman og á meðan og eftir mat þá er fólkð að hafa samráð einsog af sjálfu sér.. Þannig verður samráðið innbyggt í daglegt líf.. og allt verður opnara og einfaldara
 

orkan sem fer í að reyna að benda á leiðir og vara við ruglinu er þúsundsinnum meiri en orkan sem færi í að taka þátt í grasrótarskipulögðu stjórnlagaþingi já og lýðræði fólksins í landinu

hvílík ógnar orka það er ef við notuðum þó ekki væri nema einn tíjunda af því sem viðnú notum í að harma og gremjast hvað gert er og ekki gert.. og með nánast engum árangri.. nema vonandi hugarfarslegum breytingum, sem er jú upphaf allra breytinga, að ef við notuðum tíundapart af þessari orku í að ræða og skipuleggja samráðsform sem getur staðið uppí hárinu á peningafýsninni.. að þá erum við kominn með okkar fólkstjórn og fólkstjórnlagaþing fljótlega..  eða innan nokkurra mánaða og þó tvö þing færu í hár saman .. þá sker þjóðin úr um hvort þingið skuli taka alvarlega þegar ljóst er hvort þeirra vill þjóðinni raunverulega og í verki vel. Og ég er ekki í vafa um niðurstöðuna í því máli "þó ekkert gefi ég upp að svo stöddu". (að kunna að seigja lítið sem ekkert er list ofstjórn og valdfúsra) Altént upplifi ég að ég hafi lagt ótrúlega, nánast óhugnalega mikla orku og tíma í þessi samráðsvandamál. Að koma stjórnlagaþingi þjóðarinnar á og nýjum samráðsaðferðum er forgangsverkefni. Því nú flýtur þjóðin að feigðarósi í höndum blindingja allir valmöguleikar og þessum valmöguleikum fer æ fækkandi. Því valið hefur verið af stjórnvöldum leið peningavaldsins en ekki leið þjóðar til framtíðar. Eina aflið sem getur skapað sátt um leið fólksins er ef grasrótin rís upp. Og sameinast í skipulagningu á eigin alvöru lýðræði. Lýðræði sem tekur málstað fólksins og islands til framtíðar.

manneskjan?

þessi vera sem í raun er bara elska

 vill vera elskuð

  og gera það besta í stöðunni

 hvernig gat þessi vera orðið svona erfið og ósanngjörn ?

  hvernig gat hún lent í þessum viðstöðulausu slagsmálum og hnútakasti og blindu,

     á meða verið er að ana skipullega og æ hraðar og hraðar, í hóp frammaf hamrabrún?


allt forgengilegt.. allt þetta mikilvæga dót er rusl

allt sem við menn eigum og dúllum við allir þessir hlutir verða að dufti og viðhorf í vindinn já og jafnvel lika persónan.. þetta finn ég glöggt, þegar gamlir vinir deyja. Einsog Einar Einars fyrir nokkru og Bogga nú í vor.

En ekki jörðin.. Jörðin heldur sínu striki ansi lengi (og þó eru þar einhver blikur á lofti.. loftsteinar og kulnun sólar og fleira gæti komið upp)  og ekki skilningurinn og reynslan í genum lífveranna, þar varðveitist mikil þekking og undur, sem eru jú undir ýmsu komið einsog heilsu jarðarinnar.

Við erum streymi.. orka.. það er eitthvað sem ekki mun farast.. bara umbyltast og krauma.. gufa,.. sjatna, hitna kólna

en eitt er ljóst að manneskjan er ansi mikið forgengilegri en jörðin.  Líkja má eignarrétti manna á landi við eignarrétt flugu á fjalli.  Væri nær að telja að flugan sé hluti af jörðinni.. en ekki öfugt. Eignarréttur á landi er dæmi um vanugsaðasta hrokakast einnar dýrategundar yfir lífi allra í kringumsig.. allra tegunda líka já.

Á eftir jörðinni.. þá er lífveran með afkvæmum sínum dýpri veruleiki en dótið.. eignir.

Ef við lítum yfir sviðið virðist manni mannfólkið virða dótið mest og svo sig og sína en jörðin er minnst virt... gerð að eign þar sem umturna má öllu. 

Gildismatið stendur á höfði.  Og sá slóða og sóðaskapur þankans og hugsanavilla er að gera útafvið líf frumunnar.. grunneiningu lífsins á jörðinni.


Hvað er búið að sjá ? og hvað svo?

að við höfum verið dregin áfram af vitleysingjum græðginnar til þess að vera skækja fyrir heiminn

og selt landið og okkur sjálf og alla hugarró og manneskjulegheit veg allra vega

hvenær hefur græðgin séð vel fyrir málum?

að stjórnmálamenn, peð og fórnarlömb sinnar eigin græðgi í vald, athygli, peninga, stunda lands, orku, vatns og fyrirtækjasölu og það er í raun refsivert landráð og að þeir eru í raun í vasa bankanna sem nú eru að mestu í erlendri eigu.

að sjálft form samráðsins er á algjörum villigötum ... "djók"! ..  þvæla sem yfirstétt frekjuruglara hefur rænt og passar uppá einsog varúlfur kjörbitann sinn

að ef eitthvað á að vera eftir fyrir venjulegan þegn þessa lands eða yfir höfuð ef ísland ætlar að vera til áfram þá þarf að dreifa valdinu sem allra allra rækilegast..  og þar með hafa sameiginlega ábyrgð á tilvist og framtíð lands og þjóðar.

 og að það verðum við að gera sjálf, Jóhanna og Steingrímur hafa ekki áhuga á að deila valdinu með fleirum. Og enn síður hinir.

Svo er nú það.

Og hvernig spyr þú?

Ég hef sagt þetta áður allmörgumsinnum. Skipta landsmönnum í 100 manna hópa .. senda öllum bréf og boða fundi. Þeir sem mæta eru löglegir fulltrúar landsmanna. 

Þessir þurfa að kynnast með röð funda og velja svo einn úr hverjum hóp á landsþing og stjórnlagaþing. Þar mæta þá 3300 manns væntanlega. Og skipa sér í 33 100 manna hópa sem ræða saman í nokkra daga. Kjósa svo einn fulltrúa úr hverri deild. Þar eru þá 33 í stjórn landsins og stjórnlagaþing til eins árs. Næsta ár gerist það sama.

Meiningin er að fólk kynnist nógu vel til þess að val geti átt sér stað án áróðurs. Þessvegna ráðlegg ég sem lendgstan tíma .. (viku til 10 daga allavega eða 2 vikur) og að fólk eldi saman og baði sig og stundi leiki og listir á þingtímanum. Og sofi á sama svæði. Kynnist hvert öðru einsog fjölskylda.

 Þá er komið form sem getur samið grunnlög og stjórnað landinu.

Vera má að gamla klíkuþingið muni ekki vilja leggja sig af. Munu þá um tíma vera tvö þing. En svo vænti ég að þjóðaratkvæðagreiðsla muni aftengja gamla þingið. (við Austurvöll)


brosframboðið er viðbragð við úthrópandi siðblindu alls stjórnmálahugsunarháttarins

altso staðan er svo alvarleg í umræðunni að mestur meirihluti flokkstengdrar millistéttar hlustar ekkert á neina gagnrýni og lokar augonum fyrir heiðarlegum valkostarleiðum.. það eru allir að hugsa um sitt og sína og þjóðin flýtur að feigðarósi sem samfélag..

Þeir sem stjórna stjórna ekki en stara í gaupnir sér 

trúa á fræðingana og fræðingarnir stjórnast hefðinni sem stjórnast af peningum og allir og allt staðfastlega forritað af peningahugmyndafræðingum... yfir allan annan hugsunarhátt er valtað

að fólk sem ekki hlustar.. það fær brátt samkeppni frá þeim sem hlustað er á.. og það er trúðurinn

gamanleikarinn..  er hann einn af þeim sem upplifir að ekki sé hlustað... nema með sérstökum brögðum... húmornum.. á hann er því hlustað og þeir sem ekki hlusta þurfa að fara að hlusta... hvað er maðurinn að tala um?

    Hann brosir og talar tungum og talar um traustið sem hann er svo þakklátur fyrir og fleira gott í þjóðlegum anda..  og brosir

     Hann reynir að fara varlega í brandarana en ubs það er of seint.. þarna kom einn .. djók

Fólk er svo yfirsig þreytt á þessum venjulega hefðbunndna ræðumanni að hlusta á þetta skvaldur.. það eru velflestir búnir að sjá að þetta form gefur okkur ekki val um neitt og enginn samskipti að viti..  bara lygar og rán.

Hvort að djókerinn gerir betur... menn eru virkilega til með að taka sénsinn..  næst verða vélar spurðar ráða eða hlutkestir um val... allt frekar en þessi botnlausa afneitun

embættis og flokkakerfisins

 þurfa þá stjórnmálamenn framtíðarinnar að fara á námskeið í uppistandi?

ja það getur verið að það gæti hjálpað jú en þó er eitt sem er ennþá sterkar en brandarinn... og það er.... og haldið í ykkur andanum... aaaaaa  já hvað hvað hvaaað???  jú einlægni

þannig að til dæmis einlægur brandarakall kemur "sterkur út" "sækir fram hart"

Hvað er svona einlægt við brandarakónginn? Jú hann veltir upp ýmsum spurningum og sér heiminn út frá fleiri hliðum en fyrirrennara hans.. svosem Bubba kóng í skólaleiknum góða eða það skulum við vona því margir unna honum góðu gengi.

En sönn einlægni er sterkari jú.. þar er grunnurinn að byltingunni og að hlusta.


já það r þreytt

að þurfa

að vera í stöðugu stríði við þá sem manni þykir mest vænt um

vissulega mjög leitt

og ekki neitt

smá meitt

mitt hjarta og þitt já

að é tali nú ekki um allt hitt

nei ég sé reyndar allt aðra framtíð en þjóðlönd þegar frammísækir... eru bara hringir... þing sem geta skiptst á umsjón með svæðum (einsog að skiptast á íbúðum núna milli svæða sitthvorumegin hnattarins) en það er töluvert millibil í þann tíma að við höfum sterk grunnþing og frammaðþví vil ég halda í þjóðlöndin.

En Ísland verður alþjóðlegt á allt annan máta þegar fólk skilur þessar kenningar mínar um upprunalandið til fullnustu. Þá munu vera hér fulltrúar hópa frá flestum svæðum heims að skiptast út og nýir að koma í staðin. En vel hugsanlega verða þó sér friðlönd fyrir upprunafólk mörg í öllum löndum.

að þar haldist líka við kyrrseta..

og hér r kannski ein ástæða þess að ég er í meðallagi áhugasamur að seigja frá rótum íslads

þjappar það norðrinu saman eða sundrar það enn meir?...  

ég hef verið að vona að norðrið stæði saman með einhverja stefnu


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband