Jólaboðskapurinn í ár

Heimurinn er orðin að einu risastóru hóruhúsi

Og mafíósar þvíngunar og lyginnar ráða ferðinni. Allir eru til sölu, það er bara stigsmunur hvort líkaminn er seldur, sannfæringin eða tíminn eða stíllinn eða stællinn, röddin eða smekkurinn. Lýgin er látin breiða silkislæður yfir þetta allt saman. Og svo þykjast þeir sem selja sannfæringu sína vera betri en þeir sem selja líkama sinn og tíma. Þeir baða sig í lýginni og slá ryki í augu sín sjálfs og rembast við að ljúga að sjálfumsér og hver öðrum. Þeir (og þau og þær) selja svo stærra, selja miðin og fyrirtækin og veðsetja, sem er það sama og svo er allt landið selt og orkan, náttúran sett á fórnarstall og fyrir þetta eru keypt stöður, há laun og fínir bílar. Og menn ganga í frímúrarareglur og klæða sig upp í leikrit sem skilgreinir hve "hátt" er trjónt yfir hina... og menn verða sérfræðingar og ýmynda sér að þeir og þau og þær séu sjálfstæð og frjáls. Langt yfir skrílinn. Svífandi á rósrauðu skýi. Í fínheitum og stolti. En allir peningarnir eru bæði lognir og stolnir. Ýmist og bæði frá náunganum og náttúrunni. Já allir þjást, bæði þú og ég og allir hinir og náttúran. Allar tegundir dýra eru að deyja, allar tegundir plantna eru að sýkjast. Allt land fer æ hraðar undir malbik og vélar. Vélarnar hristast æ hraðar yfir, því vextir og stöðuga aukningin sem þeir valda, verkfæri vampíranna og bánkasjúkdómsins, þeirra sem vilja græða á þessari stöðugu aukningu, veldur því að aukningin er æ hraðari. Og þeir sem vaða um á toppinum í fínu fötonum og stjórna lögreglu og þingþjónum, þeir passa sig mest á að sjá ekkert nema rækilegar sjálfsblekkingar, sem hannaðar eru til þess. Til þess er hafður heill her af kvikmyndaframleiðendum og skriförum og "listamönnum", svokölluðum, pr og auglýsingaagentum, sem fá sína aura greidda fyrir að ljúga fallega og sannfærandi, helst svo að þeir trúi því sjálfir að allt séí lagi. Að aukningin sé hagvöxtur og framfarir. Að þeir sem stýra séu góðir, vel menntaðir, velviljaðir, skynsamir og trúi jafnvel á kærleikann... já séu í ætt við jólasveininn og guð standi að baki öllu þessu og gefi til kirkjunnar og gamlar konur andvarpa yfir gæskunni sem þarna trjónir á toppnum og stynur, ég hef gert allt eins vel og ég hef getað, ja kannski eru einhver mistök einhverstaðar "en það verður bara að vinna hratt því annars tapast svo gífurlegir fjármunir og tækifæri" já ef eitthvað er að þá eru það bara smávægilegir tæknigallar... kerfið er gott... allt til sölu og öllu stolið og með lygum en hagnaðurinn er vissulega mikill fyrir mig og mína. Og rotsíldin glottir og skipuleggur stríð, því þar eru vextirnir hæstir og hjól atvinnulífsins snúast og drápstólin renna fram fagurlimuð og valdið eykst á æ færri hendur og ennþá fleiri svelta og ennþá fleiri eru rændir og ennþá fleiri selja sig djöflinum og ennþá fleiri "menntasig" í "fræðum" lýginnar. Því hvernig eiga menn að geta afborið að sjá hvað er að gerast. Og nauðgunarbúðirnar þenjast út og það eru fínir hönnuðir setti í að gera þær fallegar og það er nauðgað með æ meiri fágun og menn fá sykurmola í munnin þar og hér og fallega ljóðlínur og lagstúf í eyrað þar og eru skrýddir í pell og purpura og sungið allan liðlangan daginn þú ert frjáls já við "berjumst" fyrir frelsi... á meðan einfeldningar eru lokkaðir inní sikurhúðaðan ógeðslygavefin, en allt eru það hórur og hórumangarar sem svífa þar silki á rauðum dreglum og stefna beinaleið í loga og auðn, því jörðin er að kikna og börnin eru æ sjúkari og fölari og jólin æ ljótari og innihaldslausari og allt dótið liggur í haug á gólfinu og fínu fötin eru útsubbuð. Og foreldrarnir liggja í einhverri vímu fyrir framan mötunarvélina, þar sem glæpareifarinn glymur og allir eru með allt harðlæst því bófonum fjölgar og dómsmálaráðherra upphugsar ný herkænskubrögð og njósnaleiðir, því hann vinnur jú á toppnum við að halda þessu öllu í heljargreipum óttans, svo engum detti í hug að hagga við neinu. Vélar djöfulsins þurfa að hanga saman þar til í helvíti er komið og allir stikkna í einni stöppu svo ekki komi nokkurntíman upp efi neinstaðar að þetta sé eftilvill leiðin í dauðaklefann. Því það mundi jú skapa glundroða. Eftilvill mundi einhver vilja kasta sér af lestinni. Nei það má ekki koma upp efi, það varðar við lög.

Dómur minn er: Allir eru hórur og hórumangarar. Hórur allt til sölu ómenningarinnar. Hórur lýginnar og ljótleikans. Hórur haturs og ótta og öfundar. Hórur vanþekkingar sem kallað er menntun og menning og lærð í víðfrægum háskólum. Hórur vaxta og áxöxtunar og fjármögnunar. Hórur óhamingu og ráðaleysis.

Og verstir eru þeir sem vefa sig silki lýginnar hvað þéttast. Verstir eru þeir staurblindu sem trúa á þetta ógeðs fyllerí kallað frjálshyggja. Frelsi til að stela og ljúga. Frelsi til að sökkva sér í siðlausan lygapytt græðginnar. Og skreyta sig svo með ránsfengnum. Baða sig í óhugnaði og með lífverði, hermenn og lögreglur og lögmenn lyganna alltumkring... passarana... þá sem fá smámyntina sem öðruhvoru fellur af yfirfylltum vösum... asnarnir sem eltast við leifarnar.

Og er einhver valkostur hér? Er einhver leið útúr þessum óhugnaði? Er einhver leið útúr hóruhúsi frjálshyggjunnar og vaxtanna og ameríska glæpareifaranum sem dómsálaráðherra lifir í?

Já við skulum skoða hvaða leið það er sem liggur útúr hugarheimi þessa ameríska hórumangara og bankamafíósa rotsíldar. Meira meira geðsjúkklingsins.
Það eru líklega ekki margir sem hafa prófað þá leið. Leið hins sanna frelsis. Leiðina sem liggur um skógargötu og fjallaslóð. Leiðinna hjartans sem er einföld og rólyndisleg. Án flýtis og stórslysa. Leiðina sem ekki byggir á því að hafa marga þræla í kringumsig. Leið álfa og náttúrubarna. Þessi leið hefur varla verið fetuð hér á landi í 1100 ár. Því 1100 ár eru síðan landræningjar komu hingað og hneptu álfa og náttúrubörn í þrældóm. En fyrir þann tíma gátum við um frjálst höfuð strokið. Við áttum allt saman. Við gátum tínt ber án þess að spyrja um leifi, ræktað hvað sem við vildum næra okkur á og veitt fisk hvarsem er án þess að greiða veiðileifi.
Við vorum líka frjáls að byggja kot hvar sem okkur þótti gott að hafa skjól og vetrardvöl. Og elska vildum við bara þegar og ef ástin kom til okkar beggja í einu.
Og þá voru jólin heilög og ljóstýran hrein og yndisleg.   Á þeim tíma vorum við öll systkyn. Dans og sönglist var okkur öllum eðlileg einsog vatn og ljóðið og galdurinn var eitt. Dýr og menn voru vinir.

Getum við lært að vera náttúrubörn á nýjanleik?

Já, þeir sem það vilja geta það. En það gerist ekki að sjálfumsér. Það er ekki einstaklingsframtak. Til þess að það gerist, þá þurfum við að koma saman og sjá þá leið saman og stilla saman strengina. 

Þessi gleðitýðindi eru jólaboðskapurinn í ár.

 að við höfumþennan möguleika fyrir framan okkur að stilla saman strengina er gleðiboðskapurinn

 

ps

Já vera má að mörgum finnist orðalag um hórerí vera þúngmelt og illa viðeigandi í samhengi við græðgisfyllerí. Ég sé þetta svo að það sé sambærilegt við orðið djöfull í kristni eða demon einsog það orð er notað í austurlöndum s.s. tíbetbúddisma.  Þ.e. dauðasyndirnar, græðgi, reiði, öfund, hatur, sumsé tilfinningar sem drífa menn út á hálan ís. Hóreríið er sumsé drifið af græðgi hjá okkur. Máski bara í grunnin mikil þrá og löngun eftir viðurkenningu, athygli og valdi, mikilvægi. Og þáttakan í þessu peninga og valdsfylleríi var og er svo almenn og því tala ég um að allir séu og hafi verið í þessu. En víst finnast undantekningar. Það er bara frekar erfitt að finna þessar undantekningar. Máski væri hægt að setja upp lista yfir þá sem ekki telja sig hafa tekið þátt í dýrkun á mammon á síðustu áratugum. En hvernig það er mælt er óvíst. Ég get þó sagt um sjálfanmig að ég tel mig hafa staðið utanvið auðgunarbrölt síðasta áratugar. En ef ég hef talið mig þurfa peninga, þá hef ég þurft að vinna fyrir þeim hörðum höndum. Ég hef hinsvegar þjáðst af annarri tegund af græðgi sem ég kenni við þekkingu og þó aðallega skilning. Á því sviði hef ég nánast gengið fram af sjálfummér. Já vanrækt bæði sjálfanmig og samskipti mín við mína nánustu. Engræðgin er lúmsk. Það er ekkert sem getur læknað okkur frá þessu hæði nema betri samfélagshættir og sjálfbærni er þar grunnurinn og almennilegt lýðræðisfyrirkomulag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Takk fyrir fundinn í gær. Já það er of margir í dag sem finnst að eihver þurfi að eiga réttinn til þess að týna berin. Kannski verður settur kvóti á berjatýnslu.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.12.2008 kl. 11:31

2 Smámynd: Tryggvi Gunnar Hansen

Takk sjálf Jakobína, þetta er góður hópur og nú sé ég hvað þú ert dugleg að vinna að góðum málefnum á síðunni þinni, takk fyrir það líka, það sem heldur mér á lífi er fólk meðsvona kærleika og réttlætiskennd.  Án þess væri lífið óbærilegt og ljótleikinn hefði fyrir löngu lagt allt í rúst.

Kær-leikur

Tryggvi 

Tryggvi Gunnar Hansen, 11.12.2008 kl. 15:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.